Bílamat
Áður en þú kaupir —
Greiningarskýrsla
Uppfletting Bílamats greinir sögu bílsins og birtir þau atriði sem þú þarft að athuga – flokkuð eftir alvarleika svo þú sjáir strax hvað skiptir máli.
Hefur bíllinn lent í slysi?
Bílar geta verið skráðir á slysaskrá eða sem tjónabílar, uppfletting Bílamats flaggar því og birtir nánari upplýsingar um slys ef þær eru skráðar.
Eigandasaga
Sjáðu hversu margir og hvers konar fyrirtæki hafa átt bílinn. Bílamat flaggar því ef bíllinn hefur til dæmis verið í eigu tryggingafélags eða fyrirtækja sem hafa verið uppvís að svindli.
Skoðunarsaga
Bílamat flaggar því ef skoðanir hafa farið langt fram yfir tíma eða ökutæki fengið margar endurskoðanir. Í sumum tilfellum má sjá hvað var sett út á í skoðun.
Sjáðu þróun kílómetrastöðu. Bílamat flaggar því ef kílómetrastaða hefur lækkað á milli skoðana, sem gæti bent til þess að átt hafi verið við mælinn.
Hver er munurinn á tjónaskrá og slysaskrá?
Helstu hugtök um tjóna- og slysasögu ökutækja
Slysaskrá
Ökutæki sem skráð hefur verið á slysaskrá en er ekki skráð tjónaökutæki, hefur orðið fyrir skemmdum sem ekki voru metnar að hafa áhrif á aksturseiginleika eða akstursöryggi. Þetta getur verið frá því að vera lítil skemmd eins og rispa, upp í að ökutækið hafi lent í árekstri.
Tjónaökutæki
Ef ökutæki hefur lent í tjóni þar sem það hefur verið metið að hafa áhrif á aksturseiginleika þess og akstursöryggi, skal skilgreina og skrá það sem tjónaökutæki og notkun þess bönnuð. Ekki má taka slíkt ökutæki í notkun á ný nema að fram fari viðgerð á því af viðurkenndu réttingaverkstæði.
Lagfærður eftir tjón
Að viðgerð lokinni tilkynnir réttingaverkstæðið til Samgöngustofu að viðgerðinni sé lokið, og þá er tjónaskráningin gerð ógild — þótt hún sjáist áfram í ferli ökutækisins.
Skjámyndir
Verð
Veldu pakka sem hentar þér
Ákveðni pakkinn
Varkári pakkinn
430 kr. / uppfletting
Vandláti pakkinn
398 kr. / uppfletting
Braskara pakkinn
329 kr. / uppfletting
Innskráning nauðsynleg til að kaupa
Skráðu þig inn til þess að byrja að leita