Skilmálar

Síðast uppfært: 9. júlí 2026

1. Rekstraraðili

Vefsíðan Bílamat.is (bilamat.is) er rekin af Tjarnabær ehf, kennitala 670821-0480, sem er skráð einkahlutafélag á Íslandi. Þar sem vísað er til „Bílamat.is“, „við“, „okkur“ eða „þjónustunnar“ í þessum skilmálum er átt við Tjarnabær ehf sem rekstraraðila vefsíðunnar. Hægt er að hafa samband við okkur á info@bilamat.is.

2. Þjónustan

Bílamat.is býður upp á uppflettingar á sögu og ástandi íslenskra ökutækja eftir skráningarnúmeri. Hver uppfletting tekur saman gögn úr opinberum skrám og frá þriðja aðila og birtir meðal annars eigandasögu, skoðunarsögu, kílómetrastöðu, tjóna- og slysaskráningu ásamt greiningarskýrslu um atriði sem vert er að athuga. Þjónustan er stafræn og afhent rafrænt í gegnum vefsíðuna.

3. Verð

Uppflettingar eru seldar í pökkum. Verð hvers pakka kemur fram á verðskrá áður en kaup eru staðfest. Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt þar sem hann á við.

4. Afhending

Keyptar uppflettingar bætast við aðganginn þinn um leið og kaupin eru staðfest og eru tilbúnar til notkunar strax. Niðurstaða uppflettingar birtist á vefsíðunni þegar þú flettir upp ökutæki og er vistuð á aðganginum þínum í 60 daga.

5. Réttur til að falla frá kaupum og endurgreiðslur

Þar sem um stafræna þjónustu er að ræða sem afhent er strax, samþykkir notandi við kaup að afhending hefjist tafarlaust og að réttur til að falla frá kaupum falli niður þegar uppflettingar hafa verið nýttar.

Ónýttar uppflettingar má endurgreiða innan 14 daga frá kaupum. Komi upp tæknileg villa, til dæmis ef uppfletting skilaði sér ekki, er hægt að óska eftir endurgreiðslu eða leiðréttingu. Sendu beiðni á info@bilamat.is og við svörum eins fljótt og auðið er.

6. Fyrirvarar

Upplýsingar á Bílamat.is eru eingöngu til leiðbeiningar og koma ekki í staðinn fyrir skoðun á ökutæki. Sjá nánar í fyrirvörum. Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna okkar.

7. Gildandi lög og lögsaga

Um þessa skilmála og alla þjónustu Bílamat.is gilda íslensk lög. Rís mál eða ágreiningur vegna skilmálanna eða þjónustunnar sem ekki tekst að leysa með samkomulagi, sbr. 8. grein, skal reka slíkt mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Skilmálar þessir eru birtir á íslensku og ensku. Ef misræmi er á milli útgáfanna skal íslenska útgáfan gilda.

8. Ágreiningur, kvartanir og úrlausn ágreiningsmála

Komi upp ágreiningur, kvörtun eða krafa vegna þjónustunnar hvetjum við notendur til að hafa fyrst samband við okkur á info@bilamat.is. Við leitumst við að svara öllum erindum innan 14 daga og leysa málið með sanngjörnum hætti í beinum samskiptum.

Náist ekki samkomulag í beinum samskiptum sætir ágreiningur úrlausn íslenskra dómstóla samkvæmt íslenskum lögum, sbr. 7. grein.

9. Hafa samband

Ef þú hefur spurningar um þjónustuna eða þessa skilmála er hægt að hafa samband við okkur á info@bilamat.is.

Tjarnabær ehf, kt. 670821-0480 · Ísland · info@bilamat.is